Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Um okkur

Fólkið á bak við Resto

Við smíðum Resto á Íslandi og vinnum náið með veitingastöðunum sem nota það.

Við viljum að íslenskir veitingastaðir hafi besta afgreiðslukerfið sem völ er á: stöðugt, nútímalegt og nógu öflugt til að halda í við annasamasta kvöldið.

Þess vegna erum við í nánu sambandi við staðina sem við þjónum. Við heimsækjum þá oft og fylgjumst með því hvernig Resto virkar á annasömu kvöldi. Við tölum við þjónana, eldhúsið og eigendurna um hvað þeim líkar og hverju þau myndu vilja breyta.

Við hlustum, og það sem við heyrum fer beint inn í Resto.

Besta stundin er þegar einhver sér nýja lausn og við sjáum að hún á eftir að létta honum vinnuna. Þess vegna gerum við þetta.

Að vinna með okkur

Við hverju þú mátt búast af okkur

  • Þú talar beint við okkur

    Það er enginn milliliður. Við segjum þér heiðarlega hvað Resto gerir í dag og hverju við erum að vinna að.

    Hafa samband
  • Við erum með þér frá fyrsta degi

    Við setjum Resto upp með þér, erum á staðnum fyrstu vaktina og komum aftur. Þú nærð í okkur, líka á annasömu föstudagskvöldi.

    Svona fara skiptin fram
  • Ábendingar þínar móta Resto

    Segðu okkur hvað myndi létta þér daginn. Við tökum það alvarlega og þú sérð það í Resto.

Hvar við erum

Við erum á Íslandi

Moonlight Projects ehf. smíðar Resto og selur kerfið. Samningar og reikningar eru í nafni félagsins.

Fyrirtæki
Moonlight Projects ehf.
Kennitala
591125-0600
Staðsetning
Ísland

Bókaðu kynningu á Resto

Við sýnum þér Resto og hvernig kerfið getur hentað þínum rekstri. Kynningin er án skuldbindingar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.