Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Afgreiðslukerfi

Afgreiðslukerfi fyrir veitingastaði, á spjaldtölvu og í síma

Taktu við pöntunum og greiðslum á venjulegum Android-spjaldtölvum, -símum og -posum.

Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.

Sjá búnaðinn sem Resto styður

Greiðsla

Allar greiðsluleiðir í boði

Allar greiðsluleiðir eru á einum skjá. Með Tap to Pay tekur þjónninn við kortagreiðslu í eigin síma, beint við borðið.

Greiðsla

Eftirstöðvar8.070 kr.

Reiðufé
Gjafakort
Í reikning
Á herbergi
Greiðsluhlekkur
Skipta
  • Viðskiptavinur og reikningur
  • Prenta reikning
  • Afsláttur
  • Endurgreiðsla
  • Afskrifa / bæta við

Tap to PayKortagreiðsla

Sæki heimild… Leggðu kortið aftan á símannGesturinn borgar á posanum
Greiðsla tókst
Upphæð
8.070 kr.
Kort
•••• 4242
Prófaðu: ýttu á „Tap to Pay“ eða „Posi“ í símanum.
Posi
Gesturinn greiðir á posa frá Teya eða Adyen og upphæðin er þegar komin á skjáinn.
Tap to Pay
Gesturinn greiðir með því að leggja kortið eða símann sinn að síma þjónsins.
Reiðufé
Kassinn sýnir hve mikið á að gefa til baka og opnar peningaskúffuna.
Gjafakort
Staðan á kortinu sést áður en greitt er.
Í reikning
Fyrirtækið fær reikning síðar. Kassinn sækir nafn og heimilisfang eftir kennitölu.
Á herbergi
Hótelgestur lætur færa reikninginn á herbergið sitt.
Greiðsluhlekkur
Gesturinn fær hlekk í SMS eða tölvupósti og borgar í eigin síma.

Afgreiðslukerfi í símanum Allar greiðsluleiðir

Val og viðbætur

Hver pöntun, fullkláruð

Þú ákveður í bakvinnslu hvað þarf að velja, hve margt má velja og hvað kostar aukalega. Þjónninn sér valkostina um leið og hann velur réttinn.

Skylda
Ef val vantar, til dæmis sósu, fær línan viðvörun á reikningnum.
Allt að 3
Kassinn leyfir ekki fleiri valkosti en hámarkið sem þú setur.
+200 kr.
Dæmi: viðbót á 200 kr. leggst við verð réttarins og birtist á kvittuninni.
Sæti 2
Hver lína getur fengið sætisnúmer, rétt (til dæmis forrétt eða aðalrétt) og athugasemd til eldhússins.

Meira um viðbætur og matseðilinn

Skipting reiknings

Skiptu reikningnum eins og hentar

Gestir greiða saman eða hver fyrir sig. Þjónninn færir vörur á sérstakan reikning, skiptir einum rétti í jafna hluta eða tekur við hluta upphæðarinnar.

Borð 12Skipta reikningi · 3 reikningar
Eftir vörumÍ jafna hlutaUpphæð
Reikningur 1 Greitt · Kort
  • Plokkfiskur3.490 kr.
  • Bjór á krana1.690 kr.
5.180 kr.
Reikningur 2 Á posa
  • Lambalæri5.880 kr.
  • Rauðvínsglas2.190 kr.
8.070 kr. Á posa
Reikningur 3 Opinn
  • Kjötsúpa2.990 kr.
  • Bleikja4.890 kr.
  • Kaffi590 kr.
8.470 kr. Greiða 8.470 kr.
Samtals 23.010 kr. Eftir 17.830 kr.
  1. Eftir vörum

    Færðu vörur yfir á nýjan reikning. Sætisnúmerin á línunum sýna hver pantaði hvað.

  2. Í jafna hluta

    Skiptu einni línu, til dæmis vínflösku, í jafna hluta á milli gesta.

  3. Upphæð

    Gestur greiðir tiltekna upphæð og eftirstöðvarnar standa opnar.

Svona virka greiðslur

Afslættir

Sjálfvirkir afslættir

Settu upp gleðistund eða hádegistilboð einu sinni í bakvinnslu. Kassinn reiknar afsláttinn á réttum tímum. Starfsfólk getur líka gefið afslátt af einni vöru eða öllum reikningnum.

Annatími

Tilbúið fyrir annasamt föstudagskvöld

Barinn og þjónarnir vinna í sömu pöntunum á sama tíma. Pöntun úr síma þjónsins sést strax á spjaldtölvunni á barnum og miðinn prentast á réttri stöð.

  • Allar pantanir á einum lista

    Borð, gestafjöldi, tími og upphæð fyrir hverja opna pöntun.

  • Pantað við borðið

    Þjónninn tekur pöntunina í símanum, beint við borðið.

  • Hver miði á sína stöð

    Grillið, kalda eldhúsið og barinn fá hvert sinn miða, eftir flokki eða vöru.

  • Lágmarksþjálfun

    Starfsfólk lærir á kassann á nokkrum mínútum og þarf lágmarksþjálfun.

Spurt og svarað

Spurningar um afgreiðslukerfið

Hvaða tæki þarf ég?

Android-spjaldtölvu, -síma eða -posa. Þú færð tækin hjá Origo eða notar Android-tæki sem þú átt nú þegar. Við förum yfir búnaðinn með þér áður en þú byrjar.

Sjá búnaðinn sem Resto styður

Sé ég hver gerði hvað?

Já. Hver starfsmaður skráir sig inn með eigin PIN-númeri. Hver pöntun geymir sögu um hver gerði hvað og hvenær, á kassanum og í bakvinnslu.

Svona sérðu hver gerði hvað

Hvað gerist ef netið dettur út í miðri vakt?

Afgreiðslan heldur áfram. Kassinn tekur áfram við pöntunum og prentar eldhúsmiða á staðarnetinu, og posi með 4G tekur áfram við kortagreiðslum. Gögnin samstillast þegar tengingin kemur aftur.

Hvað virkar án nettengingar

Get ég notað posann sem ég er með núna?

Resto vinnur með posum frá Teya og Adyen. Við förum yfir posann þinn með þér áður en þú byrjar.

Sjá tengingar

Hvernig fer salan í bókhaldið?

Vaktstjórinn lokar deginum á kassanum. Uppgjörið birtist þá í bókhaldinu þínu í dk, Reglu eða Payday.

Svona virkar uppgjör og bókhald

Er binditími?

Nei. Þú getur sagt upp hvenær sem er og tekið gögnin með þér.

Sjá verð

Bókaðu kynningu á Resto

Við sýnum þér Resto og hvernig kerfið getur hentað þínum rekstri. Kynningin er án skuldbindingar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.