Án nettengingar
Afgreiðslukerfi sem virkar áfram án nettengingar
Þegar netið dettur út heldur starfsfólkið áfram að taka pantanir og eldhúsmiðarnir prentast eins og venjulega. Öll salan skilar sér þegar netið kemur aftur.
Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.
Án nettengingar
Hvað virkar án nets
Afgreiðslan gengur á tækjunum og staðarnetinu. Það sem þarf netið bíður og skilar sér sjálft þegar netið kemur aftur.
Virkar áfram
Pantanir og greiðslur vistast á tækinu. Prentararnir ganga á staðarnetinu.
-
Kassi
Starfsfólk tekur pantanir, skiptir reikningum, gefur afslátt og tekur við reiðufé.
-
Afgreiðslukerfi í síma
Þjónninn tekur pantanir við borðið og sendir þær á eldhúsprentarann.
-
Prentarar
Eldhúsmiðar og kvittanir prentast yfir staðarnetið eða Bluetooth.
-
Sjálfsafgreiðsla
Gesturinn pantar og greiðir ef posinn nær sambandi. Eldhúsmiðinn prentast strax.
Fer eftir posa
Bíður þar til netið kemur
Þetta þarf netið. Það uppfærist sjálft þegar netið kemur aftur.
-
Nýjar pantanir á öðrum tækjum
Pantanir sem eru komnar standa áfram á eldhússkjánum. Eldhús með prentara fær nýjar pantanir á miða á meðan.
-
Sala í bakvinnslu
Þú sérð söluna fram að netrofinu. Salan á meðan netið lá niðri birtist í skýrslunum þegar netið kemur aftur.
-
Uppgjör í bókhaldið
Lokaðu deginum þegar öll tæki eru komin í samband. Þá nær uppgjörið allri sölu dagsins.
-
Verðbreytingar úr bakvinnslu
Ný verð birtast á tækjunum þegar netið kemur. Fram að því gilda eldri verðin.
-
Herbergisgjald á hótelum
Þjónninn heldur reikningnum opnum þar til netið kemur aftur.
Kortagreiðslur
Kortagreiðslur þegar netið liggur niðri
Til að samþykkja kort þarf posinn samband við færsluhirðinn. Leiðirnar eru þrjár, eftir posanum og samningnum.
- 1Ef posinn er með 4G
Posi með eigið farsímasamband
Posinn skiptir yfir á 4G þegar netið á staðnum dettur út. Kortagreiðslur virka eins og venjulega.
- 2Ef færsluhirðir leyfir
Posi sem geymir greiðsluna
Sumir færsluhirðar leyfa posanum að geyma greiðslu og senda hana síðar. Þá gildir hámarksupphæð og staðurinn ber áhættuna ef kortinu er hafnað síðar.
- 3Ef hvorugt virkar
Reiðufé eða opinn reikningur
Kassinn skráir greiðslu í reiðufé eða heldur reikningnum opnum. Gesturinn getur þá greitt þegar posinn nær sambandi.
Við förum yfir það með þér hvaða leið posinn þinn og færsluhirðirinn styðja. Greiðslur í Resto
Spurningar og svör
Hversu lengi getur Resto verið án nets?
Hvað gerist ef rafmagnið fer?
Getur sama salan skráðst tvisvar?
Hvernig veit ég að netið liggur niðri?
Sjáðu Resto vinna án nets
Bókaðu kynningu. Við tökum netið af í kynningunni og sýnum þér hvað heldur áfram að virka.
Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.
Takk.
Við höfum samband innan eins virks dags.








