Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Afslættir

Kassinn reiknar gleðistund og aðra afslætti sjálfur

Þú setur regluna upp einu sinni í bakvinnslu. Kassinn reiknar afsláttinn af réttum vörum á réttum tíma og uppgjörið sýnir hvað hann kostaði.

Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.

Sjálfvirkar reglur

Gleðistundin byrjar og endar á réttum tíma

Þú velur vikudaga og tíma. Á þeim tíma fær hver pöntun afsláttinn sjálfkrafa, á þeim söluleiðum sem þú velur: kassa, sjálfsafgreiðslu, vef eða QR-kóða.

Þú setur regluna upp einu sinni í bakvinnslu

  • Gleðistund Sjálfvirkt

    Hvað
    10 % af · Bjór á krana
    Hvenær
    Mán–fös · 16:00–18:00
    Hvar
    KassiSjálfsafgreiðslaVefpöntun
    Hverjir
    Allir gestir
  • Hádegistilboð Sjálfvirkt

    Hvað
    15 % af · Aðalréttir
    Hvenær
    Mán–fös · 11:30–14:00
    Hvar
    KassiSjálfsafgreiðsla
    Hverjir
    Allir gestir
  • Starfsfólk Sjálfvirkt

    Hvað
    20 % af · Allur reikningurinn
    Hvenær
    Alla daga · Allan daginn
    Hvar
    Kassi
    Hverjir
    Hópurinn „Starfsfólk“

Skilyrði sem þú getur sett

Vörur
Valdar vörur eða heilir flokkar, eða allur reikningurinn.
Dagsetningar
Fyrsti og síðasti dagur, til dæmis tilboð í einn mánuð.
Undantekningar
Dagar þegar afslátturinn gildir ekki, til dæmis aðfangadagur.
Upphæð
Lágmark og hámark reiknings.
Viðskiptavinir
Nafngreindir viðskiptavinir eða hópar, til dæmis starfsfólk eða fastagestir.
Einn í einu
Afslátturinn getur sleppt vörum sem eru þegar með afslátt.

Á kassanum

Starfsfólk gefur afslátt á vöru eða allan reikninginn

Til dæmis þegar réttur tefst eða fyrir stóran hóp. Starfsmaður velur prósentu, krónur eða fast verð og kassinn sýnir strax nýja verðið.

Á vöru
Prósenta, krónur eða fast verð á eina vöru.
Á reikning
Prósenta eða krónur af öllum reikningnum.
Ástæða
Starfsmaður getur skráð ástæðu. Saga pöntunarinnar sýnir hver gaf afsláttinn og hvenær.
Fjarlægja
Starfsmaður getur tekið sjálfvirkan afslátt af og sett hann aftur á.

Skýrslur

Þú sérð hvern afslátt í uppgjöri dagsins

Hver afsláttur er sér lína í X- og Z-skýrslunni, með nafni, upphæð og fjölda. Í bakvinnslu finnurðu allar pantanir þar sem afsláttur fór yfir ákveðna upphæð.

Svona sérðu hver gerði hvað

AI Gervigreind

Biddu gervigreindina að setja afsláttinn upp

Skrifaðu til dæmis „10 % af bjór á krana virka daga frá 16 til 18“. Gervigreindin sýnir þér regluna og vistar hana þegar þú samþykkir.

Dæmi um samtal: eigandinn biður um happy hour, gervigreindin sýnir regluna, eigandinn samþykkir og happy hour gildir frá mánudegi kl. 16:00.

AI Gervigreind Dæmi

  • Hún býr til nýja afslætti og breytir þeim sem fyrir eru.
  • Hún útskýrir af hverju afsláttur gilti eða gilti ekki á tiltekinni pöntun.

Meira um gervigreindina

Spurningar

Algengar spurningar um afslætti

Getur gleðistund náð fram yfir miðnætti?
Já. Tímabilið getur til dæmis verið frá 22:00 til 02:00. Kassinn miðar við klukkuna á staðnum.
Fær opin pöntun afslátt sem byrjar á meðan gestirnir sitja?
Já. Sjálfvirkur afsláttur gildir um leið og hann verður virkur. Opnar pantanir fá hann líka, næst þegar verð þeirra er reiknað upp á nýtt.

Bókaðu kynningu á Resto

Við sýnum þér Resto og hvernig kerfið getur hentað þínum rekstri. Kynningin er án skuldbindingar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.