Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Afgreiðslukerfi í símanum

Allt afgreiðslukerfið í vasanum.

Taktu pantanir og greiðslur við borðið, allt í einum síma.

Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.

Greiðsla við borðið

Tap to Pay

Með Tap to Pay tekur þú við greiðslum beint í símanum. Gestir greiða með því að bera kort, síma eða úr beint að símanum þínum.

  1. 1

    Tap to Pay

    Þjónninn ýtir á „Greiða“ á reikningnum.

  2. 2

    Kortið á símann

    Gesturinn ber kortið, símann eða úrið að bakhlið símans.

  3. 3

    Greitt

    Búið!

Allar greiðsluleiðir

Við borðið

Pantað beint við borðið

Í símanum er allur matseðillinn, allt val og viðbætur og borðaskipanin þín. Þjónninn sendir pöntunina í eldhúsið beint frá borðinu, sparar sér ferð að kassanum og maturinn kemur fyrr.

Á posa

Breyttu posanum í afgreiðslukerfi

Resto keyrir líka sem forrit á posum frá Teya og Straumi. Þú tekur pöntunina og kortagreiðsluna í einu handtæki. Posinn tengist um 4G og gengur á rafhlöðu, svo hann hentar úti á palli, á hátíð eða í matarvagni.

TeyaStraumurAdyen

Panta og greiða í einu tæki
Starfsmaðurinn slær inn pöntunina og gesturinn greiðir á sama posanum. Eldhúsmiðar og kvittanir prentast á prentara staðarins.
Sami matseðill og sömu skýrslur
Salan á posanum er í sama uppgjöri og salan á spjaldtölvum og símum.

Spurningar

Algengar spurningar

Þarf ég posa ef ég nota Tap to Pay?

Nei. Síminn tekur sjálfur við greiðslu með snertilausu korti, síma eða úri. Þú getur samt notað posa á sama stað, til dæmis við barinn.

Hvaða síma get ég notað?

Android-síma með NFC og Android 12 eða nýrri. Adyen þarf að samþykkja símann og Resto athugar það áður en fyrsta greiðslan fer í gegn. iPhone er ekki studdur.

Búnaður sem Resto styður

Hvaða greiðslutækni notar Tap to Pay?

Adyen. Resto setur Tap to Pay upp fyrir þig, svo þú þarft ekki að gera sérstakan samning. Staðurinn getur líka notað posa frá Teya eða Adyen.

Greiðslur í Resto

Get ég notað símann sem kassa án Tap to Pay?

Já. Síminn tekur pöntun, sendir hana í eldhúsið og tekur við reiðufé, gjafakorti eða greiðslu á posa, eins og spjaldtölvan.

Hvað gerist ef netið dettur út?

Eldhúsmiðar prentast áfram á þráðlausa netinu á staðnum. Nýjar pantanir birtast á eldhússkjánum þegar netið kemur aftur. Tap to Pay þarf samband við Adyen. Sími með SIM-korti notar þá 4G.

Án nettengingar

Prentast kvittun þegar greitt er í símanum?

Já, ef gesturinn vill. Kvittunin prentast á kvittunarprentara staðarins.

Prentarar

Get ég endurgreitt kortagreiðslu?

Já. Endurgreiðslan fer aftur á sama kortið, öll eða að hluta.

Bókaðu kynningu á Resto

Við sýnum þér Resto og hvernig kerfið getur hentað þínum rekstri. Kynningin er án skuldbindingar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.