Afgreiðslukerfi fyrir veitingastaði á Íslandi.
Resto er afgreiðslukerfi, eldhússkjár, sjálfsafgreiðsla, net- og QR-pantanir og bakvinnsla í einu kerfi.
Kerfið
Þetta fylgir Resto
-
Afgreiðslukerfi
Starfsfólkið tekur við pöntunum og greiðslum á því tæki sem hentar staðnum.
Meira um afgreiðslukerfið -
AI Gervigreind
Spurðu um tölurnar, taktu mynd af matseðli og skráðu ofnæmisvalda. Engin breyting tekur gildi fyrr en þú samþykkir hana.
Meira um AI Gervigreind -
Greiðslur
Gestir greiða á posa eða beint í síma þjónsins. Hver gestur getur greitt sinn hluta.
Meira um greiðslur -
Netpantanir
Gestir panta á vefnum eða við borðið með QR-kóða og þú sérð pöntunina í afgreiðslukerfinu.
Meira um netpantanir -
Eldhússkjár
Hver réttur fer á rétta stöð í eldhúsinu eða á barnum, á skjá, á miða eða hvort tveggja.
Meira um eldhússkjáinn -
Bakvinnsla
Þú breytir matseðlinum og skoðar söluna í vafra eða í símanum. Uppgjör dagsins er tilbúið í bókhaldskerfinu, til dæmis dk, Reglu eða Payday.
Meira um bakvinnsluna -
Skoðunarferð um kerfið
Sjáðu hvernig Resto virkar í gegnum eitt föstudagskvöld á veitingastað.
Skoða kerfið
Lausnir fyrir
Resto lagar sig að því hvernig staðurinn starfar.
Eitt kerfi fyrir borðþjónustu, skuldfærslu á herbergi, sjálfsafgreiðslu, opna reikninga og sölu í síma. Hver staður notar þá hluta sem hann þarf.
-
Fínni veitingastaðir
Bókanir kvöldsins úr EasyTable birtast á borðaskipaninni.
Sjá nánar - #41 · Borð 43 gestir · Borða á staðnum
- 1 Humarsúpa 3.490 kr
- 1 Kjötsúpa 2.990 kr
- 1 Bleikja 4.890 kr Nýtt
- 1 Hamborgari 3.590 kr NýttFranskarOstur (300 kr) Án lauks
- 1 Lambalæri 5.490 kr Nýtt
- 1 Hvítvínsglas 1.990 kr
- 1 Bjór á krana 1.490 kr
Bæta við vöruGreiða23.930 kr Senda (3)Veitingastaðir
Þjónninn sendir aðalréttinn í eldhúsið þegar borðið er tilbúið.
Sjá nánar -
- #63 · Borð 12Herbergi 204 · 2 gestir
- 1 Tómatsúpa 2.190 kr
- 1 Andasalat 3.290 kr
- 1 Þorskhnakki 4.990 kr
- 1 Steikarborgari 4.390 krFranskarBeikon (400 kr) Án lauks
- 1 Hvítvínsglas 2.190 kr
- 1 Bjór á krana 1.590 kr
- 1 Espresso martini 2.990 kr
Bæta við vöruGreiða21.630 krGreiðsla Eftirstöðvar21.630 krKortReiðuféTap to PayGjafakortReikningsviðskiptiÁ herbergiGreiðsluhlekkurSkiptaViðskiptavinur og reikningsupplýsingar Prenta reikning Afsláttur EndurgreiðslaHótel
Starfsfólk færir reikninginn beint á herbergi gestsins.
Sjá nánar -
-
Kaffihús
Pantanir með viðbótum, eins og haframjólk, birtast á skjá við kaffivélina.
Sjá nánar -
Skyndibiti
Gestir panta og greiða sjálfir á standi, á íslensku, ensku eða öðru tungumáli.
Sjá nánar - Skipta reikningiPöntun #882 valdar Skipta Sameina Afsláttur Ógilda
Reikningur 1 - 1 IPA á krana 1.990 kr
- 1 Gin og tónik 3.290 krHendrick’s (600 kr)Gúrka
- 1 Kjúklingavængir 2.490 krSterk sósa
- 1 Espresso martini 2.990 kr
Reikningur 2 - 2 Lager á krana 3.380 kr
- 1 Nachos 2.290 kr
- 1 Prosecco-glas 2.390 kr
Nýr reikningurBarir
Gestir hafa opinn reikning allt kvöldið og starfsfólk skiptir honum við greiðslu.
Sjá nánar -
-
Hátíðir og matarvagnar
Seldu og taktu við kortagreiðslum í einum Android-síma með Tap to Pay.
Sjá nánar
Tap to Pay
Taktu við greiðslu beint í símanum
Þjónninn tekur pöntunina og greiðsluna á sama Android-símanum. Gesturinn leggur kort, síma eða úr að bakhlið símans og greiðslan fer í gegn.
Virkar á Android-símum með NFC og Android 12 eða nýrra. Resto setur Tap to Pay upp fyrir þig og greiðslur fara í gegnum Adyen.
AI Gervigreind
Spurðu gervigreindina um söluna og matseðilinn
Þú skrifar á venjulegu máli, í tölvunni eða í símanum.
Hvernig gekk salan í síðustu viku miðað við vikuna á undan?
- Las sölu eftir dögum
- Bar saman tvær vikur
Salan jókst um 8,4 %. Mest jókst hún á sunnudag, um 53.850 kr. Aðeins á mánudag var hún minni en vikuna á undan.
| 21.–27.09. | 14.–20.09. | |
|---|---|---|
| mán | 198.400 kr. | 205.100 kr. |
| þri | 214.900 kr. | 190.300 kr. |
| mið | 236.700 kr. | 221.800 kr. |
| fim | 301.200 kr. | 284.600 kr. |
| fös | 548.300 kr. | 502.900 kr. |
| lau | 612.800 kr. | 571.400 kr. |
| sun | 340.250 kr. | 286.400 kr. |
Samtals2.452.550 kr.+8,4 %14.–20.09.: 2.262.500 kr.
sala-eftir-dogum.xlsxExcel · 7 línur · CSV fylgir
Er eitthvað að í uppsetningunni hjá okkur?
- Fór yfir uppsetninguna
- Las 84 vörur
Ég fann 6 atriði. Þau mikilvægustu eru fyrst.
- MikilvægtKjötsúpa er í netpöntun en kostar 0 kr.
- MikilvægtEngin varastöð er skráð, svo drykkir fara ekki á neina stöð.
- MikilvægtViðbótahópurinn „Sósur“ er án valkosta.
- MiðlungsÞrjár vörur vantar enskt heiti: Kleina, Pylsa og Lambalæri.
- MiðlungsTvær vörur heita „Franskar“.
- MinniháttarPlokkfiskur er í netpöntun en án myndar.
- Laga verð á Kjötsúpu
- Bæta við enskum heitum
- Senda drykki á barinn
Hér er nýi matseðillinn. Uppfærðu verðin og bættu við því sem vantar.
- Las myndina
- Bar hana saman við matseðilinn
Ég fann 5 breytingar. Hver breyting bíður eftir samþykki þínu.
Breyta vöruKjötsúpa
Verð2.490 → 2.690 kr.
Breyta vöru · Kjötsúpa Þú samþykktir
Breyta vöruPlokkfiskur
Verð3.490 → 3.690 kr.
Breyta vöru · Plokkfiskur Þú samþykktir
Stofna vöruBleikja
Verð4.290 kr.
Stofna vöru · Bleikja Þú samþykktir
Stofna vöruSkyr
Verð1.490 kr.
Stofna vöru · Skyr Þú samþykktir
Breyta vöruKleina
HeitiKleinur (3)
Breyta vöru · Kleina Þú samþykktir
Búið. Samþykktu breytingarnar eru komnar á kassana, sjálfsafgreiðsluna og netpöntun.
Settu næringargildi og ofnæmisvalda á Plokkfisk eftir uppskriftinni.
- Fletti upp 5 hráefnum í næringargögnum
- Fann smjörið eftir strikamerki
- Reiknaði orku og salt (ESB 1169)
Breyta vöru · Plokkfiskur
Hráefni
- Ýsa300 gNæringargögn
- Kartöflur250 gNæringargögn
- Mjólk200 mlNæringargögn
- Laukur80 gNæringargögn
- Smjör40 gStrikamerki
- Hveiti30 gNæringargögn
Ofnæmisvaldar
- GLÚTEN
- Krabbadýr
- Egg
- FISKUR
- Jarðhnetur
- Soja
- MJÓLK
- Hnetur
- Sellerí
- Sinnep
- Sesam
- Súlfít
- Lúpína
- Lindýr
Í 100 g
- Orka
- 458 kJ / 109 kcalreiknað
- Fita
- 4,7 g
- þar af mettuð fita
- 2,8 g
- Kolvetni
- 9,0 g
- þar af sykurtegundir
- 1,6 g
- Trefjar
- Ekki til
- Prótein
- 7,7 g
- Salt
- 0,2 greiknað
Trefjagildi vantar fyrir smjörið, svo ég skildi það eftir autt. Farðu yfir gildin áður en þú vistar.
Breyta vöru · Plokkfiskur Þú samþykktir
Búið. Næringargildi og ofnæmisvaldar Plokkfisks eru vistuð.
Spurt og svarað
Það sem eigendur spyrja um áður en þeir skipta
Er binditími?
Nei. Resto er mánaðaráskrift sem þú getur sagt upp hvenær sem er. Ef þú hættir tekur þú gögnin með þér: matseðilinn, sölutölurnar og uppgjörin. Tækin sem þú keyptir eru áfram þín eign.
Þarf ég að kaupa nýjan búnað?
Ekki endilega. Resto keyrir á venjulegum Android-spjaldtölvum, -símum og -posum, svo þú getur byrjað með tækin sem þú átt. Það sem vantar færðu frá Origo. Við sjáum um tækin og uppfærslur eru settar upp utan opnunartíma.
Þurfum við að slá matseðilinn inn aftur?
Nei. Sendu okkur útflutning úr gamla kerfinu, töflureikni eða mynd af matseðlinum. Við setjum inn réttina, verðin, viðbæturnar og ofnæmisvaldana.
Þarf að þjálfa starfsfólkið?
Mjög lítið. Starfsfólk kemst af stað með lágmarksþjálfun og við förum yfir grunnatriðin með því á fyrstu vaktinni.
Næ ég í einhvern á föstudagskvöldi?
Já. Þjónustusíminn er opinn á kvöldin og um helgar, þegar veitingastaðir hafa mest að gera. Þú talar við okkur, og við þekkjum staðinn þinn.
Hvað kostar Resto?
Dæmi: afgreiðslukerfið kostar 39.000 kr. á mánuði fyrir hvern stað með einu tæki, og 2.500 kr. fyrir hvert tæki umfram það, án VSK. Bakvinnsla er innifalin. Öðrum lausnum, eins og eldhússkjá, sjálfsafgreiðslu og netpöntunum, getur þú bætt við. Í kynningunni færðu verð fyrir þinn stað.
Sjáðu Resto með þínum eigin matseðli.
Við setjum upp kynningu með þínum réttum og verðum. Hún tekur 30 mínútur.
Bóka kynningu
Takk.
Við höfum samband innan eins virks dags.
Það sem gerist næst
-
Innan eins virks dags
Við hringjum í þig
Við hringjum, finnum tíma sem hentar og fáum matseðilinn þinn.
-
Kynningin, 30 mínútur
Þú sérð kerfið með þínum matseðli
Við sýnum afgreiðslukerfið, eldhússkjáinn og bakvinnsluna með þínum réttum og verðum.
-
Þegar þér hentar
Við setjum Resto upp á staðnum
Við komum með tækin og setjum kerfið upp með þér.
Viltu frekar senda tölvupóst? hello@resto.is






