Öryggi
Við gætum tækjanna og gagnanna
Við uppfærum tækin á nóttunni og læsum þeim ef þau týnast. Hver starfsmaður skráir sig inn með eigin PIN-númeri. Gögnin eru geymd í Evrópu.
Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.
Sláðu inn PIN
Sláðu inn PIN
Resto
Sláðu inn PIN
Resto
Tækin
Við stýrum tækjunum fyrir þig
Öll tæki staðarins eru í miðlægri tækjastýringu (MDM). Við setjum þau upp, uppfærum þau og læsum þeim ef þau týnast.
Tæki staðarins
6 tæki
- Kassi við barinn Uppfært kl. 03:00
- Kassi í salnum Uppfært kl. 03:00
- Sími á veröndinni Uppfært kl. 03:00
- Eldhússkjár Uppfært kl. 03:00
- Sjálfsafgreiðsla Uppfært kl. 03:00
- Aukasími Týndist Læst úr fjarlægð
Sólarhringurinn
Opið 11:00–23:00. Uppfærsla 03:00.
-
Uppfærslur á nóttunni
Tækin setja sjálfkrafa upp kerfis- og forritauppfærslur utan opnunartíma. Kassinn er tilbúinn þegar þú opnar.
-
Læst úr fjarlægð
Ef sími eða spjaldtölva týnist hringir þú í okkur, líka á kvöldin og um helgar. Við læsum tækinu úr fjarlægð.
-
Fjarlægt í bakvinnslunni
Stjórnandi fjarlægir tæki í bakvinnslunni. Tækið missir aðganginn strax en saga þess er geymd.
-
Ný tæki þurfa samþykki
Nýtt tæki sýnir QR-kóða. Stjórnandi skannar kóðann og samþykkir tækið í bakvinnslunni. Fyrr tengist tækið ekki.
Aðgangur
Hver starfsmaður skráir sig inn með eigin PIN-númeri
Kerfið veit alltaf hver er við kassann. Hlutverkið ræður hvað hver og einn getur gert í bakvinnslunni.
-
Eigið PIN
Hver starfsmaður fær fjögurra stafa PIN-númer. Vaktstjóri eða stjórnandi býr það til í bakvinnslunni.
-
Læsist sjálfkrafa
Þegar kassinn er ónotaður í smá stund birtist viðvörun og svo læsist hann.
Hlutverk í bakvinnslunni
Hvað hvert hlutverk má gera í bakvinnslunni og í gegnum gervigreindina.
| Stjórnandi | Vaktstjóri | Starfsmaður | |
|---|---|---|---|
| Sjá starfsfólk | Já | Já | Já |
| Sjá sölu og skýrslur | Já | Já | Nei |
| Breyta matseðli og verðum | Já | Já | Nei |
| Gefa vöru eða breyta verði á pöntun | Já | Já | Nei |
| Stofna starfsfólk og PIN-númer | Já | Já | Nei |
| Breyta stillingum og tækjum | Já | Nei | Nei |
| Gera annan að stjórnanda | Já | Nei | Nei |
Rekjanleiki
Hver aðgerð er skráð með tíma og nafni
Hver pöntun geymir sína sögu. Þar sést hver opnaði hana, bætti við vörum, gaf afslátt, ógilti vöru eða tók við greiðslu, og klukkan hvað.
- Um 60 tegundir aðgerða eru skráðar í sögu pöntunar.
- Við ógildingu velur starfsmaður ástæðu. Ástæðan er skráð í söguna.
- Uppgjör dagsins sýnir hve oft peningaskúffan var opnuð án sölu.
- 1 Humarsúpa 3.490 kr
- 1 Kjötsúpa 2.990 kr
- 1 Bleikja 4.890 kr
- 1 Hamborgari 3.590 krFranskarOstur (300 kr) Án lauks
- 1 Lambalæri 5.490 kr
- 1 Hvítvínsglas 1.990 kr
- 1 Bjór á krana 1.490 kr
Föstudagur 2. október 2026
- 18:02AnnaOpnaði pöntuninaBætti við 1× Humarsúpa, 1× KjötsúpaBætti við 1× Hvítvínsglas, 2× Bjór á krana
- 18:06AnnaÓgilti 1× Bjór á kranaÁstæða: Rangt slegið innSendi 4 vörur í eldhús og á bar
- 18:41JónBætti við 1× Bleikja, 1× Hamborgari, 1× LambalæriSendi 3 vörur í eldhús
- 19:24JónPrentaði reikning · 23.930 kr
Föstudagur 2. október 2026
- 18:02AnnaOpnaði pöntuninaBætti við 1× Humarsúpa, 1× KjötsúpaBætti við 1× Hvítvínsglas, 2× Bjór á krana
- 18:06AnnaÓgilti 1× Bjór á kranaÁstæða: Rangt slegið innSendi 4 vörur í eldhús og á bar
- 18:41JónBætti við 1× Bleikja, 1× Hamborgari, 1× LambalæriSendi 3 vörur í eldhús
- 19:24JónPrentaði reikning · 23.930 kr
Gögnin
Gögn staðarins eru aðskilin, dulkóðuð og afrituð
Resto keyrir í gagnaveri Amazon Web Services á Írlandi. Gögnin eru geymd innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Tækin á staðnum
AWS á Írlandi
eu-west-1, innan EES
Gagnagrunnur, dulkóðaður á diski
- schemaStaðurinn þinn
- schemaAnnar staður
- schemaAnnar staður
-
Hver staður er aðskilinn
Gögn hvers staðar eru í sérstöku skema (schema) í gagnagrunninum. Hver beiðni er bundin við einn stað.
-
Dulkóðaðar tengingar
Öll samskipti við netþjóna Resto fara um dulkóðaða tengingu, TLS 1.2 eða nýrri.
-
Dulkóðuð gögn
Gagnagrunnurinn er dulkóðaður á diski. Aðgangslyklar að dk, færsluhirðum og hótelkerfum eru dulkóðaðir sérstaklega.
-
Afrit í 7 daga
Gagnagrunnurinn er afritaður sjálfkrafa og afritin eru geymd í 7 daga. Hann er líka varinn gegn eyðingu.
-
Gögnin eru þín
Sala hvers dags er bókuð í bókhaldskerfinu. Gervigreindin gefur þér skýrslur og töflur sem CSV- eða Excel-skrár.
Kortagreiðslur
Resto geymir aðeins niðurstöðu greiðslunnar
Posinn les kortið og færsluhirðirinn afgreiðir greiðsluna. Kortanúmer og PIN-númer verða eftir hjá þeim.
Posinn og færsluhirðirinn
- Kortanúmer
- Gildistími
- PIN-númer
- Gögn af örgjörva kortsins
Það sem Resto geymir
- Upphæð
- 4.980 kr.
- Niðurstaða
- Samþykkt
- Kort
- Visa, debet
- Síðustu 4 tölur
- •••• 4821
Þetta gildir líka þegar síminn tekur sjálfur við snertilausri greiðslu.
Spurt og svarað um öryggi
Getur gervigreindin breytt einhverju sjálf?
Hvað gerist ef netið dettur út?
Lestu meira í leiðbeiningunum
Allar leiðbeiningarViltu sjá hvernig tækin eru sett upp?
Við sýnum þér innskráningu, hlutverk og tækjastýringu í kynningunni.
Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.
Takk.
Við höfum samband innan eins virks dags.