- 1× Þorskhnakki
- 1× Steikarloka
QR-pantanir
Gestirnir panta og greiða við borðið
Gesturinn skannar QR-kóðann á borðinu, pantar og greiðir í símanum. Þú sérð pöntunina á kassanum með heiti borðsins og þjónninn kemur með matinn.
Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.
Uppsetning
Einn kóði á hvert borð.
Þú velur borðin í bakvinnslunni, prentar merkin og setur eitt á hvert borð.
Svona teiknar þú salinn-
Veldu borðin
Borðin koma úr salnum þínum, flokkuð eftir rýmum. Þú getur sleppt einstökum borðum, til dæmis á barnum.
- Pantaðu hér1restoPantaðu hér2restoPantaðu hér7restoPantaðu hérP1resto
Prentaðu merkin
Þú sækir merkin sem PDF, fyrir eitt borð eða mörg í einu. Hvert merki sýnir kóðann og heiti borðsins.
- Pantaðu hér7resto
Settu merki á hvert borð
Gesturinn skannar kóðann með myndavél símans og matseðillinn opnast með borðið valið.
Skref 1 / 4 · Matseðill
Matseðillinn opnast í símanum.
Gesturinn skannar kóðann og matseðillinn opnast í vafranum. Ekkert forrit og engin innskráning.
- Matseðillinn er á íslensku og ensku.
- Þú velur hvaða vörur, flokkar og viðbætur eru í QR-pöntunum.
- Uppseldar vörur eru merktar.
- Viðbætur virka eins og á kassanum.
Skref 2 / 4 · Greiðsla
Greitt um leið og pantað er.
Gesturinn fer yfir pöntunina og greiðir með korti í símanum. Svo sér hann stöðu pöntunarinnar og hvenær maturinn kemur.
- Kortagreiðslur fara í gegnum Straum eða Teya.
- Gesturinn getur greitt með gjafakorti staðarins, að hluta eða að fullu.
- Gesturinn getur fengið VSK-reikning í tölvupósti, líka á kennitölu fyrirtækis.
Skref 3 / 4 · Kassinn
Þú samþykkir hverja pöntun.
Ný pöntun birtist á kassanum með heiti borðsins. Starfsmaður samþykkir hana og gefur upp tíma, eða hafnar henni.
- Ef pöntun er hafnað fær gesturinn endurgreitt sjálfkrafa.
- Þegar mikið er að gera gerir þú hlé á nýjum pöntunum í 15, 30 eða 60 mínútur.
Skref 4 / 4 · Eldhúsið
Heiti borðsins á hverjum miða.
Samþykkt pöntun fer í eldhúsið eins og pöntun af kassanum. Miðinn sýnir heiti borðsins, svo þjónninn veit hvert maturinn á að fara.
- Á eldhússkjánum er miðinn merktur greiddur.
- Hver réttur fer á sína stöð, til dæmis grill, kalt eldhús eða bar.
Algengar spurningar
Getur gesturinn greitt í lokin, eins og við venjulegt borð?
Hvað ef gesturinn vill panta meira?
Get ég haft annan matseðil í QR-pöntunum?
Hvaða búnað þarf ég?
Lestu meira í leiðbeiningunum
Allar leiðbeiningarSjáðu QR-pöntun fara frá borðinu í eldhúsið
Í kynningu sýnum við þér alla leiðina: merkið, matseðilinn í símanum, greiðsluna og miðann í eldhúsinu.
Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.
Takk.
Við höfum samband innan eins virks dags.
