Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Búnaður

Keyrir á Android-tækjum, líka þeim sem þú átt

Kassinn, eldhússkjárinn og sjálfsafgreiðslan keyra á Android-spjaldtölvum, -símum og -posum. Þú færð tækin frá Origo eða notar þau sem þú átt.

Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.

Hvaðan tækin koma

Þú færð tækin frá Origo eða notar þín eigin

Origo er samstarfsaðili Resto um búnað. Ef þú átt Android-tæki nú þegar getur þú byrjað á þeim og keypt aðeins það sem vantar.

Búnaður frá Origo

Spjaldtölvur, posar, prentarar og skjáir koma frá Origo. Við setjum tækin upp með þér á staðnum.

Þín eigin tæki

Resto keyrir á venjulegum Android-spjaldtölvum og -símum. Ef tæki bilar kaupir þú nýtt og tengir það með QR-kóða. Tækin sem þú kaupir eru þín.

Það sem tækið þarf

Stýrikerfi
Android
Net
Wi-Fi eða netsnúra á staðarneti
Kassi
Sími, eða spjaldtölva 8 tommur eða stærri
Posi
Android-posi frá Origo eða frá færsluhirðinum þínum
Bakvinnsla
Vafri í tölvu eða síma

Við förum yfir tækin þín með þér í kynningunni.

Tækin

Eitt app, fimm gerðir tækja

Hvert tæki fær sitt hlutverk þegar þú setur það upp.

  1. Kassinn við afgreiðsluborðið

    Spjaldtölva 10–13″

    Á spjaldtölvunni tekur starfsfólkið pantanir, skiptir reikningum og gerir upp í lok dags. Hún stendur á standi við barinn eða afgreiðsluborðið.

    Skjár
    10–13 tommur
    Festing
    Standur eða veggfesting
    Net
    Wi-Fi eða netsnúra

    Um afgreiðslukerfið

  2. Kassinn í vasa þjónsins

    Sími 6–7″

    Þjónninn tekur pöntunina við borðið og sendir hana beint í eldhúsið. Með Tap to Pay tekur síminn líka við kortagreiðslum, án posa.

    Skjár
    6–7 tommur
    Greiðsla
    Tap to Pay: gesturinn ber kort eða síma að símanum
    Net
    Wi-Fi

    Um kassann í símanum

  3. Kassi og kortalesari í einu tæki

    Posi 6,75″

    Afgreiðslukerfið keyrir á posanum sjálfum og posinn tekur við greiðslunni. Matarvagn eða lítið kaffihús getur því byrjað með eitt tæki.

    Kort
    Snertilaust, örgjörvi, PIN
    Skjár
    6,75 tommur, snertiskjár
    Færsluhirðar
    Teya, Adyen og Straumur

    Um greiðslur

  4. Skjár við hverja stöð í eldhúsinu

    Eldhússkjár Frá 10″

    Spjaldtölva á vegg dugar. Stærri eldhús nota skjá á vegg eða á stöng úr lofti með litlu Android-tæki í HDMI-tengi skjásins.

    Skjár
    Frá 10 tommum upp í 24 tommur og stærra
    Festing
    Veggfesting, armur eða stöng úr lofti
    Snertiskjár
    Mælt með, svo kokkurinn geti merkt miða tilbúna

    Um eldhússkjáinn

  5. Gestir panta og greiða sjálfir

    Sjálfsafgreiðslustandur 21–32″

    Sjálfsafgreiðslan keyrir á uppréttum Android-skjá með kortalesara. Gesturinn pantar og greiðir, og pöntunin fer beint í eldhúsið.

    Skjár
    21–32 tommur, uppréttur
    Festing
    Gólfstandur, borðstandur eða veggfesting
    Greiðsla
    Kortalesari í standinum

    Um sjálfsafgreiðslu

Prentarar

Kvittanir og eldhúsmiðar á venjulegum prenturum

Resto prentar á kvittunarprentara frá Epson, Star Micronics og Partner Tech. Hver eldhússtöð fær miða á pappír, á skjá eða hvort tveggja.

  • Star Micronics
  • Epson
  • Partner Tech
Prentarar
Epson TM, Star Micronics, Partner Tech og aðrir nettengdir ESC/POS-prentarar
Tenging
Netsnúra, Wi-Fi eða Bluetooth
Pappír
80 mm eða 58 mm
Uppsetning
Kassinn finnur prentarana á staðarnetinu
Peningaskúffa
Tengist prentaranum

Prentarar og hvaða réttir prentast hvar

Uppsetning

Svona gæti uppsetningin litið út

Byrjaðu á því sem þú þarft og bættu við tækjum síðar.

Algengar spurningar um búnað

Ertu með spurningu um tiltekið tæki? Sendu okkur gerðina og við segjum þér hvort það virkar.

Hafa samband

Virkar Resto á iPad eða iPhone?
Kassinn, eldhússkjárinn og sjálfsafgreiðslan keyra á Android. Bakvinnslan opnast í vafra, svo þú getur notað hana á Mac, iPad eða hvaða tölvu sem er.
Hver sér um uppfærslur á tækjunum?
Við sjáum um þær. Tækin eru í tækjastýringu (MDM) og uppfærslur eru settar sjálfkrafa upp utan opnunartíma. Lestu meira um öryggi.
Hvað verður um tækin ef ég hætti að nota Resto?
Tæki sem þú keyptir eru þín. Þú getur sett annað kerfi upp á þeim eða notað þau í annað.
Hvað gerist ef nettengingin rofnar?
Kassinn tekur áfram við pöntunum og prentar eldhúsmiða á staðarnetinu. Posi með 4G tekur áfram við kortagreiðslum. Gögnin samstillast þegar netið kemur aftur. Lestu meira um Resto án nettengingar.

Viltu vita hvort tækin þín virki?

Bókaðu kynningu og segðu okkur hvaða tæki þú átt. Við förum yfir listann með þér áður en þú byrjar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.