Sjálfsafgreiðsla
Gestirnir panta og greiða sjálfir
Standurinn sýnir sama matseðil og kassinn, á tungumáli gestsins. Gesturinn greiðir með korti, eldhúsið fær pöntunina og gesturinn fær númer.
Skref 1 / 4 · Ofnæmisvaldar
Ofnæmisvaldarnir á skjánum.
Gesturinn ýtir á „Meiri upplýsingar“ og sér hráefnin, ofnæmisvaldana og hvað rétturinn gæti innihaldið.
- Allir 14 ofnæmisvaldar á lista ESB.
- Þú skráir hráefnin einu sinni og standurinn og kassinn sýna það sama.
- Gesturinn les allt á sínu tungumáli. Ef þýðingu vantar birtist textinn á aðaltungumáli staðarins.
Skref 2 / 4 · Viðbætur
Allar viðbætur greiddar.
Gesturinn velur viðbæturnar sjálfur, eins og á kassanum. Verð hverrar viðbótar bætist við verð réttarins.
- Standurinn biður um skylduval, til dæmis „veldu eitt brauð“, áður en rétturinn fer í körfuna.
- Uppseldir valkostir eru gráir.
- Gesturinn getur skrifað séróskir, til dæmis „engan lauk“.
Skref 3 / 4 · Greiðsla
Greitt með korti, númer á skjánum.
Gesturinn skrifar nafnið sitt og greiðir snertilaust með korti eða síma á posanum við standinn. Standurinn sýnir pöntunarnúmer og starfsfólkið kallar nafnið eða númerið þegar maturinn er tilbúinn.
Skref 4 / 4 · Eldhús
Greiddar pantanir beint í eldhúsið.
Eldhúsið sér pöntunina á skjá sinnar stöðvar, við hlið pantana úr kassanum. Ef þú vilt frekar pappír prentast hún á eldhúsprentara. Þú getur líka notað hvort tveggja.
Eldhússkjár
Allar stöðvar 18HRATT 6Í LAGI 1SEINT 19 í vinnslu⌀ 8:32— Í bið — FORRÉTTIR —
— Í bið — AÐALRÉTTIR —
— Í bið — FORRÉTTIR —
— Í bið — AÐALRÉTTIR —
Eldhússkjár
Allar stöðvar 18HRATT 6Í LAGI 1SEINT 19 í vinnslu⌀ 8:32— Í bið — FORRÉTTIR —
— Í bið — AÐALRÉTTIR —
— Í bið — FORRÉTTIR —
— Í bið — AÐALRÉTTIR —
Spurt og svarað um sjálfsafgreiðslu
Hvaða búnað þarf ég?
Android-skjá á standi og posa. Í eldhúsinu notar þú eldhússkjá, eldhúsprentara eða hvort tveggja. Við útvegum búnaðinn í gegnum Origo.
Hvaða tungumál eru í boði?
Þú velur tungumálin og skrifar þýðingar á réttum og viðbótum. Hnappar og skilaboð standsins eru til á íslensku, ensku, þýsku, frönsku, spænsku og ítölsku.
Hvað gerist ef greiðslan tekst ekki?
Ef kortinu er hafnað verður engin pöntun til og gesturinn getur reynt aftur eða hætt við.
Ef posinn svarar ekki biður standurinn gestinn að tala við starfsmann áður en hann reynir aftur, svo kortið sé ekki skuldfært tvisvar. Ef standurinn endurræsist eftir að greiðslan er samþykkt klárar hann sömu pöntun.
Fer salan af standinum í uppgjörið?
Já. Sala af standinum fer í sama uppgjör og salan á kassanum og þaðan í bókhaldið.
Hvað kostar sjálfsafgreiðsla?
Dæmi um verð eru á verðsíðunni, án VSK. Í kynningunni förum við yfir verð fyrir þinn stað.
Bókaðu kynningu á sjálfsafgreiðslunni
Við sýnum þér standinn og förum yfir matseðilinn þinn með þér.
Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.
Takk.
Við höfum samband innan eins virks dags.









