Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Matseðill og vöruskrá

Allur matseðillinn á einum stað

Verð, VSK, ofnæmisvaldar og þýðingar á einum stað.

Það kostar ekkert að skipta yfir í Resto og enginn binditími er á samningnum.

Ofnæmisvaldar

Merktu hvað hver vara inniheldur og starfsfólkið getur svarað gestum strax.

Dæmi

Smjörbakaður þorskhnakki

4.290 kr.

  • Korn með glúteni: Laust við
  • Krabbadýr: Getur innihaldið snefil
  • Egg: Laust við
  • Fiskur: Inniheldur
  • Jarðhnetur: Laust við
  • Sojabaunir: Laust við
  • Mjólk: Inniheldur
  • Hnetur: Laust við
  • Sellerí: Inniheldur
  • Sinnep: Laust við
  • Sesamfræ: Laust við
  • Súlfít: Laust við
  • Lúpína: Laust við
  • Lindýr: Laust við

Svona sér gesturinn réttinn í sjálfsafgreiðslu og netpöntun

Smjörbakaður þorskhnakki FiskurMjólkSellerí Getur innihaldið snefil: krabbadýr
4.290 kr.

Á kassanum

Þegar réttur klárast tekur starfsfólkið hann úr sölu á kassanum.

Viðbætur

Ákveddu hvað gestir mega velja, til dæmis eitt meðlæti og allt að tvær viðbætur.

Viðbætur · Hamborgari

  1. Meðlæti Skylda lágm. 1 · hám. 1

    Veldu eitt meðlæti.

    • Franskar
    • Salat
    • Sætkartöflufranskar +200 kr.
  2. Aukalega Valfrjálst lágm. 0 · hám. 2

    Veldu allt að tvö. Hvert bætir sínu verði við.

    • Beikon +300 kr.
    • Ostur +200 kr.
    • Spælt egg Uppselt
    • Jalapeño +150 kr.

Einn hópur á margar vörur

Tengdu hópinn við heilan flokk í einu.

Rásir KassiSjálfsafgreiðslaNetpöntun

Þýðingar

Skrifaðu hvert heiti einu sinni á hverju tungumáli. Gestir velja tungumál í sjálfsafgreiðslu og á netinu.

Dæmi

Rjómalöguð tómatsúpa

Með basilíku og nýbökuðu brauði

1.990 kr.

Verðbreytingar

Breyttu verði einu sinni og öll tæki fá það.

Kjötsúpa Vistað
Verð með VSK 2.490 kr.2.690 kr. Var 2.490 kr.

Laugavegur

  • Kassi 1 2.490 kr.2.690 kr. Uppfært Bíður
  • Kassi 2 2.490 kr.2.690 kr. Uppfært Bíður
  • Sjálfsafgreiðsla 2.490 kr.2.690 kr. Uppfært Bíður

Akureyri

  • Kassi 1 2.490 kr.2.690 kr. Uppfært Bíður
  • Posi 1 2.490 kr.2.690 kr. Uppfært Bíður
Getið þið flutt matseðilinn úr gamla afgreiðslukerfinu?
Já. Sendu okkur útflutning úr gamla kerfinu eða mynd af matseðlinum og við færum hann inn án aukakostnaðar. Lestu meira um að skipta um afgreiðslukerfi.
Get ég haft önnur verð í hádeginu en á kvöldin?
Já. Afsláttarregla getur gilt á ákveðnum tímum og vikudögum, til dæmis gleðistund milli 16 og 18. Lestu um afslætti.
Sjá kokkarnir ofnæmisvalda og athugasemdir á eldhússkjánum?
Athugasemdir og viðbætur birtast á miðanum á eldhússkjánum. Ef gestur er með ofnæmi skrifar þjónninn það í athugasemd við réttinn og kokkurinn sér hana á miðanum. Ofnæmisvaldar hverrar vöru sjást á kassanum.
Hvaða VSK-þrep fær hver vara?
Þú velur VSK-þrepið fyrir hverja vöru. Matur og drykkur, áfengi meðtalið, er í 11 %. Annar varningur, til dæmis taupoki, er í 24 %. Ný vara fær 11 % nema þú veljir annað. Lestu leiðbeiningar um VSK.
Get ég séð framlegð á hverjum rétti?
Já. Þú skráir kostnaðarverð á vöruna í bakvinnslunni. Þar sést framlegðin í prósentum og í krónum á hverja einingu.

Viltu sjá matseðilinn þinn í Resto?

Bókaðu kynningu og við förum yfir vöruskrána með þér. Þegar þú byrjar setjum við matseðilinn upp með þér.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.