Stillingar fyrir vafrakökur

Veldu hvað við megum vista í tækinu þínu. Þú getur breytt valinu hvenær sem er með tenglinum neðst á hverri síðu.

Spurningar um gögnin þín? Hafðu samband

Eitt föstudagskvöld með Resto

Fylgdu einum veitingastað frá opnun til lokunar.

Undirbúningur fyrir vaktina

Fyrir vaktina spyr vaktstjórinn gervigreindina hvernig kvöldið líti út: hve margir gestir eiga bókað, hvenær þeir koma og hvar stórir hópar sitja. Bleikjan er búin og eldhúsið er með rétt kvöldsins. Vaktstjórinn biður gervigreindina að merkja bleikjuna uppselda og bæta réttinum við, og samþykkir báðar breytingarnar.

Lesa um gervigreindina
  • Bókanir kvöldsins og stórir hópar
  • Athugasemdir eins og ofnæmi og afmæli
  • Uppseldar vörur á öllum tækjum
  • Réttir kvöldsins á öllum söluleiðum
  • Og margt fleira
Kvöldið í kvöld Dæmigögn

Hvernig lítur kvöldið út?

2 skref · Las bókanir kvöldsins · Athugaði hvað er uppselt

Í kvöld eru 14 bókanir og 58 gestir. Flestir koma á milli 19:00 og 20:30. Ekkert er uppselt enn.

Stórir hópar

TímiGestirBorðAthugasemd
19:3083 + 4Afmæli, hnetuofnæmi
20:0012EinkasalurFastur matseðill

Bleikjan er búin. Settu hana á 86-listann og bættu við rétti kvöldsins: steiktur þorskur, 4.590 kr.

Ég merki Bleikju uppselda og bæti Steiktum þorski við aðalrétti á 4.590 kr.

Merkja uppselt

Vara
Bleikja
Staða
Uppselt
Samþykkja Hafna

Merkja uppselt · Bleikja Þú samþykktir

Búa til vöru

Vara
Steiktur þorskur
Flokkur
Aðalréttir
Verð
4.590 kr.
Samþykkja Hafna

Búa til vöru · Steiktur þorskur Þú samþykktir

Búið. Bleikja er uppseld og Steiktur þorskur er kominn í afgreiðslukerfið, á sjálfsafgreiðslustandinn og í netpantanir.

Þjónustan hefst

Starfsfólkið skráir sig inn á kassann með eigin PIN-númeri og sér salinn: hvaða borð eru laus, hver eru bókuð og hverjir koma næst. Þegar gestir koma vísar þjónninn þeim á borðið sem þeir eiga bókað. Gestir án bókunar fá laust borð. Ef gestir mæta ekki eða afbóka losnar borðið fyrir aðra.

Lesa um salinn og borðin
  • Innskráning með PIN-númeri
  • Bókanir kvöldsins frá EasyTable
  • Bókanir og gestir án bókunar settir á borð
  • Gestir sem mæta ekki og afbókanir merktar

Gleðistund

Klukkan 17:00 hefst gleðistund. Drykkir eru með 10 % afslætti til kl. 19:00 og kassinn setur afsláttinn sjálfur á. Starfsfólkið þarf ekki að gera neitt. Afsláttarreglan var sett upp einu sinni í bakvinnslunni og afslátturinn sést á reikningnum og í skýrslum dagsins.

Lesa um afslætti
  • Afsláttur eftir tíma, vikudögum og söluleiðum
  • Af vöru eða öllum reikningnum
  • Handvirkur afsláttur með ástæðu

Pöntunin tekin

Þjónninn slær inn pöntun fyrir allt borðið, eftir sætum og réttaröð, með meðlæti og viðbótum hvers gests. Forréttirnir fara strax í eldhúsið. Aðalréttirnir bíða þar til borðið er tilbúið.

Lesa um borðþjónustu
  • Sæti og réttaröð
  • Meðlæti, viðbætur og athugasemdir á hverjum rétti
  • Aðalréttir sendir þegar borðið er tilbúið
  • Sami matseðill á öllum tækjum

Pöntunin berst í eldhúsið

Pöntunin birtist á eldhússkjánum um leið og þjónninn sendir hana. Á hverjum miða sést hve langt er síðan hann var sendur. Hver réttur fer á rétta stöð. Kokkurinn merkir rétt tilbúinn þegar hann er klár.

Lesa um eldhússkjáinn
  • Eldhússkjáir, prentarar eða hvort tveggja
  • Hver réttur fer á rétta stöð
  • Tími frá því pöntun var send

Gestur pantar á standinum

Gestur pantar mat til að taka með á standinum við innganginn og greiðir með korti. Pöntunin fer á eldhússkjáinn eins og hver önnur pöntun.

Lesa um sjálfsafgreiðslu
  • Matseðillinn á sex tungumálum
  • Greitt með korti á standinum

Á veröndinni

Þjónninn er með síma með Resto. Gestir panta og greiða við borðið í einu lagi: pöntunin fer í eldhúsið og gesturinn ber kort eða síma að síma þjónsins.

Lesa um kassa í símanum
  • Sami kassi í síma og spjaldtölvu
  • Tap to Pay í símanum
  • Það þarf engan posa

Gestirnir á einu borði greiða hver fyrir sig

Gestirnir við borðið vilja greiða hver fyrir sig. Þjónninn velur réttina og færir þá á nýjan reikning á spjaldtölvunni. Hver reikningur er greiddur sér, með korti á posanum eða með reiðufé.

Lesa um greiðslur
  • Skipt eftir réttum, rétti deilt í jafna hluta eða greitt eftir upphæð
  • Hver reikningur greiddur sér
  • Kort, reiðufé, gjafakort og fleira

Netið dettur út og afgreiðslan heldur áfram

Nettengingin í götunni slitnar í miðri vakt. Kassinn tekur áfram við pöntunum og prentar eldhúsmiða á staðarnetinu. Þegar netið kemur aftur skilar salan sér sjálfkrafa.

Lesa um virkni án nettengingar
  • Eldhúsmiðar prentast áfram
  • Posi með 4G tekur áfram við kortagreiðslum
  • Salan skilar sér þegar netið kemur aftur
  • Internet: Ekkert samband
  • Staðarnet: Virkt
  • Færslur: Bíða á staðnum

Vaktstjórinn lokar deginum á kassanum

Síðustu gestirnir eru farnir. Vaktstjórinn opnar uppgjörs skýrsluna á kassanum og sér söluna, afslætti, afskriftir og endurgreiðslur dagsins. Skýrslan sýnir líka hve oft skúffan var opnuð án sölu. Vaktstjórinn prentar skýrsluna og lokar deginum.

Lesa um rekjanleika
  • VSK sundurliðaður í 11 % og 24 %
  • Skúffuopnanir án sölu taldar
  • Hver aðgerð skráð í sögu pöntunar

Sala dagsins er komin í bókhaldið

Sala dagsins, greiðslur og virðisaukaskattur eru bókuð í bókhaldskerfinu. Á mánudaginn finnur eigandinn alla helgina þar. Eigandinn skoðar daginn í símanum heima. Bakvinnslan virkar bæði í tölvu og síma.

Lesa um uppgjör og bókhald
  • Dagleg sending í bókhaldið
  • VSK bókaður eftir þrepum
  • Bakvinnslan virkar í síma

Bókaðu kynningu á Resto

Við sýnum þér Resto og hvernig kerfið getur hentað þínum rekstri. Kynningin er án skuldbindingar.

Við förum sjálf yfir hverja beiðni og höfum samband við þig. Við svörum líka á kvöldin og um helgar.

hello@resto.is

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband vegna Resto.